Hvín á hvarmi glugga, hvíldarstólnum ruggar,
vindsveipur á vergangi, frostkaldur og þrár.
Ákaft feykti forðum fleiri þúsund orðum,
mállaust eftir stendur kvæðið tómt.
Ylur um veggi læðist, óvarin gleði fæðist,
flæða frjálst um herbergið fróðra manna ljóð.
Hver sem heima hefur eigið athvarf
getur eigin líðan sniðið, einn í kyrrð og ró.
Hlustaðu, hlustaðu, heyrirðu hvar hvinurinn breytti þögn í svar.
Óræð myndin málast alls staðar.
Dyrunum lokar, læsir og hvæsir, kveður í kafið óhræsið.
Kveðjuna kalda metur til valda:
„Hver mun gjalda?“
Neitar illum öflum, beinir frá sér höndum.
Sofnar fyrr en síðar hættuflóð.
Varlega reynir vernda, válegum burtu benda,
styrkir veggjastoðir, stendur fótum á.
Ylurinn nú umvefur, meðan úti skeður, válegt norðanveður
sem engan bítur á.
„Farðu nú, farðu nú, fjúktu þinn veg!
Saman við stöndum hér, húsið og ég!
Engin á innri sál að þjást,
og enginn ætti einn við þig að kljást.“
credits
from Tendra,
released November 6, 2020
Music: Mikael Máni
Lyrics: Marína Ósk
Producer: Mikael Máni
Marína Ósk: Vocals
Mikael Máni: Guitar, bass, hammond, effects, sampling.
Kristofer Rodriguez Svönuson: Drums, percussion
Heiður Lára Bjarnadóttir: Cello
Tendra’s music is a combination of alternative pop and modern singer/songwriter music while the band members’ common passion
for jazz allows the music to open up for improvisation and the unexpected. The melodies showcase experimental textures at times while the storytelling-style of the Icelandic lyrics range from a “casual conversation” writing style to being poetic, picturesque and expressive...more
Yorkshire songwriter and guitarist Kindelan explores life's in-between moments on a debut EP of soulful and sweet jazz. Bandcamp New & Notable Jun 1, 2023
Consummate pop songwriting both smart and smooth, with the ability to resonate universally without compromising uniqueness. Bandcamp New & Notable Sep 20, 2017
New York duo showcase an enigmatic blend of math rock guitars, pop-punk sing-a-longs, emo confessionals, and even rave-ready synths. Bandcamp New & Notable Nov 15, 2023